Hæfniþrep: 2 (1.1 og 1.2) og 3 (2.1, 2.2, 3.1 og 3.2)
Einingafjöldi: 5
Viðfangsefni: Söngur á sviði klassískrar tónlistar.
Lýsing: Einkatímar í söng. Einstaklingsmiðað nám þar sem verkefni eru valin eftir getu og þörfum hvers nemanda.
Forkröfur: Grunnpróf í söng. Grunnpróf í tónfræði.
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Nemendur taka próf í lok hverrar annar, jafnframt fá nemendur iðnieinkunn frá kennara þar sem almenn ástundun er metin. Jafnframt þurfa nemendur að koma fram á tónleikum á hverri önn.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Tónbókmenntum sem skrifaðar hafa verið fyrir söngvara.
- Stíl og túlkun ólíkra tónlistarstefna.
- Staðsetningu þeirra verka sem nemandi syngur í tónlistarsögunni.
- Samfélagslegu hlutverki tónlistar á ólíkum tímum.
- Sögulegu samhengi verkanna sem unnin eru í áfanganum.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Vinna með söngtækni út frá eðli sinnar raddar.
- Flytja tónverk í viðkomandi námsstigi á tónleikum.
- Nýta möguleika raddarinnar til túlkunar og flutnings á verkum í viðkomandi námsstigi.
- Flytja tónverk á nokkrum mismunandi tungumálum.
- Flytja söngverk með sannfærandi túlkun.
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Túlka tónverk á viðkomandi námstigi á sannfærandi hátt.
- Koma fram á opinberum tónleikum.
- Flytja tónverk í ólíkum stíltegundum á sjálfstæðan og skapandi hátt.