Hæfniþrep: 1
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: Saga óperutónlistar, ljóðasöngs og annarra söngverka frá upphafi rómantíska tímabilsins og fram til nútímans.
Lýsing: Í áfanganum er farið yfir sögu söngbókmennta frá upphafi rómantíska tímabilsins og fram til nútímas, þar sem fjallað er um helstu höfunda og verk sem móta tímabilið. Sagan er skoðuð í samhengi við almenna sögu tímabilsins í gegnum orsakir og afleiðingar. Leitast er við að tengja og skilja stöðu, þróun og framvindu tónlistarsinnar í ljósi ýmiskonar þjóðfélagslegra umbrota sem fylgdu tímaskeiðinu.
Forkröfur: Engar.
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Stutt hlustunarpróf í kennslustundum, ritgerðarverkefni, próf úr efni í annarlok.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Fagurfræðilegum og hugmyndafræðilegum forsendum er liggja til grundvallar mismunandi stílum og einkennum söngverka.
- Hvernig mikilvægir atburðir í mannkynssögunni hafa áhrif á þróun tónsköpunar.
- Þróun stíls og einkenna á mismunandi tímabilum.
- Gagnkvæmum áhrifum á milli mismunandi listgreina.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Fjalla um afmörkuð viðfangsefni er tengjast sögu söngtónlistar.
- Svara munnlega og skriflega spurningum um tónlistarsöguleg málefni s.s. samhengi, orsakir, afleiðingar, stíl og áferð.
- Þekkja mismunandi söngverk með tilliti til höfundareinkenna, stíls og áferðar.
- Geta greint söguleg einkenni í samræmi við þróun stíls á tímabilinu.
- Fjalla um tónlistarsöguleg málefni í heimildaritgerð.
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Þekkja helstu höfunda og söngverk sem móta tímabilið.
- Geta fjallað um og útskýrt helstu stíltegundir í söngtónlist á tímabilinu.
- Þekkja helstu einkenni sem fylgja söngtónlist fram til loka klassíska tímabilsins.
- Útskýra helstu form og gerðir verka á tímabilinu sem um ræðir.
- Hafa yfirsýn og getu til að fjalla um þróun sönglistar á tímabilinu.
Námsmat: Stutt hlustunarpróf í kennslustundum, ritgerðarverkefni, próf úr efni í annarlok.
Til baka í áfangayfirlit.