Hæfniþrep: 2
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: raddskrár, helstu raddsetningaaðferðir, formgreining, hljómgreining, laglínugreining, hljóðfærafræði, ritháttur fyrir rytmísk hljóðfæri, frágangur radda fyrir hljóðfæri.
Lýsing: Í áfanganum er farið í mismunandi hljóðfærafjölskyldur, hefðbundna rytmasveit, saxófón-fjölskylduna, brass-fjölskylduna, mannsraddir, strengja-fjölskylduna og slagverkið. Skilaverkefni fylgja hverri fjölskyldu fyrir sig og eru þau skilyrði til að ljúka áfanganum. Verkefnin eru unnin á vefrænu nótnaskriftarforriti og skilist á því formi. Nokkur verkefni verða spiluð í tíma af nemendum. Námsefni er á kennsluvef áfangans.
Forkröfur: Rytmísk hljómfræði 2.2.
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Námsmat fer fram með skilaverkefnum sem eru u.þ.b. 3 skilaverkefni í Jazzútsetningum 1.1, auk tímaverkefna. Einkunn er gefin fyrir yfirfarin verkefni og er sú einkunn grunnurinn fyrir lokaeinkunn áfangans ásamt tímaverkefnum.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlar þekkingu og skilning á:
- Helstu raddsetningaraðferðum í rytmískri tónlist.
- Kunna skil á formgreiningu útsetninga.
- Kynnast notkun hljómfræðiaðferða til útsetninga.
- Hvernig nálgast skal útsetningu sem listræna útfærslu tónverks, en ekki upprit á því sem þegar hefur verið gert.
Þekkja helstu takmarkanir hljóðfæra og hvað skal hafa í huga áður en skrifað er fyrir mismunandi hljóðfæri. Góð þekking á hljóðfærafræði.
Leikniviðmið:
Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- Útsetja fyrir nánast hvaða minni hóp sem er.
- Lesa raddskrár og greina út frá hljómfræði, form- og laglínugreiningu.
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útsetja eigin tónsmíðar annarra.
- Útsetja fyrir nemendur í kennslu eða önnur tilefni í kennslustofnunum.
- Geta útskýrt og leitt æfingar á eigin útsetningum og annarra.
- Öðlast þekkingu á helstu stílum útsetninga.