Hæfniþrep: 4
Einingafjöldi: 5
Viðfangsefni: Áhersla er lögð á að efla tónheyrn og færni í að greina hvernig laglínur og hljómasambönd eru uppbyggð. Námið miðar að því að nemendur hafi vald á að syngja, greina og skrifa niður algeng takt-, laglínu- og hljómferli þar sem tóntegundaskipti og krómatískar nótur koma fyrir. Mikið er unnið með samhæfingu í ýmsum takttegundum og sungin eru dæmi með tiltölulega erfiðum tónbilum og hrynferlum í “bebop” stíl. Tóndæmi eru sungin þar sem tóntegundaskipti koma fyrir.
Lýsing: Tónlestur, aukin þjálfun í hrynlestri og samhæfingu, tónbil og ritun hljóma, laglínu- og hrynferla. Í tónheyrninni er notast við Solfa kerfið.
Forkröfur: Rytmísk tónheyrn 2.2.
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Próf og námsmat: Frammistaða í tímum (10%), 3 áfangapróf (30%), skriflegt og munnlegt próf í lok námskeiðs þar sem hvort gildir (30%).
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Laglínusöng með Solfa aðferð og uppbyggingu hljóma.
- Hvernig algengar rytmískar hrynhendingar, byggðar á arfi rytmískrar tónlistar, eru útfærðar í nótnaskrift.
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Nemandi skal hafa tileinkað sér færni í að:
- Heyra, syngja og rita niður laglínuhendingar í dúr- og molltónstigum sem byggðar eru á algengum rytmískum hrynmynstrum.
- Greina algeng hljómferli, sem eru svipuð að erfiðleikastigi og kennd eru í Rytmískri hljómfræði 2.2.
- Hagnýta sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur öðlast, til að efla samleik og spuna.