Hæfniþrep: 1
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: Tónlistarsaga, hlustun, formfræði.
Lýsing: Í námskeiðinu kynnast nemendur vestrænni tónlist frá upphafi nótnaritunar til loka barokktímans um 1750. Tekin eru fyrir verk sem þykja lýsandi fyrir þróun tónlistarinnar í gegnum miðaldir, endurreisn og barokk. Nemendur takast á við mikilvægar spurningar er lúta að einkennum og þróun stíls á hverju tímabili fyrir sig.
Forkröfur: Engar.
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Stutt hlustunarpróf í kennslustundum, ritgerðarverkefni, próf úr efni í annarlok.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mikilvægi tónlistarsögu fyrir heildrænan þroska í tónlist.
- Fagurfræðilegum og hugmyndafræðilegum forsendum er liggja til grundvallar mismunandi stílum og einkennum tónverka.
- Hvernig mikilvægir atburðir í mannkynssögunni hafa áhrif á þróun tónsköpunar.
- Þróun stíls og einkenna á mismunandi tímabilum.
- Gagnkvæmum áhrifum á milli mismunandi listgreina.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Fjalla um afmörkuð viðfangsefni er tengjast tónlistarsögu frá 700-1750.
- Svara munnlega og skriflega spurningum um tónlistarsöguleg málefni s.s. samhengi, orsakir, afleiðingar, stíl og áferð.
- Þekkja mismunandi tónverk með tilliti til höfundareinkenna, stíls og áferðar.
- Geta greint söguleg einkenni í samræmi við þróun stíls á tímabilinu.
- Fjalla um tónlistarsöguleg málefni í heimildaritgerð.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeið á nemandi að:
- Þekkja helstu höfunda og verk sem móta tímabilið.
- Þekkja og skilja helstu einkenni sem tengjast tónlist tímabilsins.
- Geta fjallað um og útskýrt stílræn einkenni í tónlist.
- Hafa grunngetu til að fjalla um sögulegt samhengi tónlistar á mismunandi skeiðum.
- Hafa yfirsýn og getu til að útskýra helstu form og gerðir verka á tímabilinu.
- Hafa yfirsýn og getu til að fjalla um þróun stíleinkenna á tímabilinu.
Námsmat: Stutt hlustunarpróf í kennslustundum, ritgerðarverkefni, próf úr efni í annarlok.
Til baka í áfangayfirlit.