
Gísli stundaði píanónám Tónmenntaskólanum í Reykjavík. Eftir stúdentspróf hóf hann söngnám í Söngskólanum í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Síðar stundaði hann nám í tónmenntakennslu í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann nam um tíma söng við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag í Hollandi. Árið 2007 hóf hann nám við The Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan með diplómu þremur árum síðar.
Í gegnum árin hefur Gísli sungið meðal annars með Schola cantorum í Reykjavík, kór Langholtskirkju, Kammerkórnum Carminu, sönghópnum Grímu, Reykjavík 5 og Bjargræðiskvartettinum, tekið þátt í uppfærslum í Íslensku Óperunni, Borgarleikhúsinu, Broadway/Hótel Ísland svo eitthvað sé nefnt auk þess að hafa sungið sem bakraddasöngvari inn á fjöldann af geisladiskum á Íslandi og erlendis.
Hann hefur kennt söng síðustu árin og raddþjálfað kóra og sönghópa. Hann hefur einnig verið viðamikill sem útsetjari og var aðalútsetjari fyrir skemmtiþáttinn AllStars á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2. Í Kaupmannahöfn stjórnaði hann um tíma íslenska kórnum Stöku, Kvennakór Kaupmannahafnar og dönskum kór sem ber nafnið Carmen Curlers. Hann stjórnaði einnig um tíma Íslendingakórnum í London. Á haustmánuðum 2012 tók hann við sem stjórnandi kvennakórsins Léttsveit Reykjavíkur. Gísli hefur starfað sem söngkennari við FÍH síðan árið 2014.
Netfang: gislimagna@gmail.comSímanúmer: 694 5566
Til baka í kennarayfirlit