
Gunnsteinn stundaði nám í fiðluleik við Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann lærði einnig tónsmíðar hjá Jóni Ásgeirssyni. Framhaldsnám stundaði hann við Franz Liszt-tónlistarakademíuna í Búdapest og Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi þaðan sem hann lauk prófi í hljómsveitarstjórn og tónfræði. Gunnsteinn var veturlangt á Ítalíu þar sem hann stúderaði tónlist Monteverdis og frumflutti í kjölfarið á Íslandi helstu verk hans.
Gunnsteinn var upphafsmaður að Þjóðlagahátíð Siglufjarðar árið 2000 og stóð að stofnun Þjóðlagaseturs Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði árið 2006.
Gunnsteinn hefur staðið á stjórnendapalli m.a. hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og Caput. Þá hefur hann stjórnað óperuuppfærslum, m.a. hjá Íslensku óperunni. Hann stjórnar Háskólakórnum og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins. Á sviði tónsmíða hefur Gunnsteinn einkum samið kórlög og einsöngslög auk ævintýraóperunnar Baldursbrár sem hlaut afbragðs dóma þegar hún var frumflutt árið 2014.
Gunnsteinn kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Hann hefur kennt tónfræðigreinar við Tónlistarskólann í Reykjavík s.s. tónheyrn, kontrapunkt og tónbókmenntir.
Netfang: gol@ismennt.isSímanúmer: 565 3188 / 692 6030
Til baka í kennarayfirlit